Jahérnahér

Samkvæmt þessari frétt voru það alls 28 manns sem komust í kast við lögin í síðustu viku á Seyðisfirði vegna umferðarlagabrota.  Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands voru 579 manns 17 ára og eldri (með bílpróf) á Seyðisfirði 31. desember 2006.  Ef reiknikunnáttan bregst mér ekki voru það því 4,8% íbúanna sem lentu í löggunni af þessum sökum.  Þar að auki voru einhverjir teknir fyrir líkamsárás.  Lögreglan telur sig reyndar vita hverjir voru þar að verki, enda ekki svo margir sem koma til greina þegar búið er að stinga öllum þessum ökuníðingum í steininn.  Maður spyr sig hvort það hafi virkilega verið vegna veðurs sem Norræna lagðist ekki að bryggju þennan þriðjudag.
mbl.is Sex teknir fyrir hraðakstur á Seyðisfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbrögð

Helgin afstaðin og stutt í Lundúnaferð okkar hjóna.  Förum suður á miðvikudagskvöld og út á fimmtudag.  Þetta verður flott, rólegt og gott.  Þetta er í raun matarklúbbsferð þannig að við förum með Valdísi og Braga og hittum svo Óla og Heiðu úti en þau koma frá Svíþjóð.  Ég efast ekki um að þetta verði skemmtilegt og græna grasið muni verða alsráðandi

Ég lenti á Kúttmagakvöld hjá Lions á um helgina.  Ætlaði nú ekkert að fara en ákvað á síðustu stundu að skella mér.  Þetta var náttúrulega algjört karlrembupartý en það sem stóð uppúr var maturinn.  Ég veit ekki hvað margar tegundir af allskonar fiskréttum, hver örðum betri.  Síðan tók við general bjórþamb og röfl fram eftir nóttu þannig að maður var frekar þreyttur í gær.

Ég er annars mjög ánægður með að vera farinn að fá viðbrögð hér á blogginu.  Fólk að skrifa í gestabókina og kommentera færslur.  Það er gaman - endilega gera meira af því.


Hann á afmæli í dag ...

Hver hefði trúað því, Osama Bin Laden er bara fimmtugur.  Ég hefði veðjað á að hann væri a.m.k. jafn gamall og jólasveinarnir.  Hvernig ætli þessi mesti skúrkur veraldar haldi upp á afmælið sitt?  Skilti hann skjóta upp flugeldum í tilefni dagsins?  Það er annars alveg ótrúlegt að enginn skuli vita hvort maðurinn er lífs eða liðinn, eins og tæknin er í dag.  Ekki þar fyrir að mér er alveg slétt sama.  Hef meiri áhyggjur af því að enginn skuli skrifa í gestabókina mína hér á blogginu ;)
mbl.is Bin Laden fimmtugur í dag?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laugardagar

DSC00045Jæja þá er kominn laugardagur og ég mættur í vinnuna.  Ákvað að teygja aðeins á heilanum og skrifa eina stutta bloggfærslu áður en ég hefst handa.  Það er svo merkilegt með laugardaga að þeir eru alveg frábærir vinnudagar.  Það er svo mikill friður og ró og gott næði til að gera allskonar hluti sem maður hefur hummað fram af sér alla vikuna.  Á þessari mynd má t.d. sjá hvernig vinnuaðstaðan lítur út eftir vikuna - allt í drasli!  En svona laugardagsmorgnar eru einmitt tilvaldir til að kippa svona óreiðu í liðinn og það ætla ég mér að gera einmitt núna.


Kapphlaup

Flestar íþróttir eru hollar fyrir líkama og sál, um það eru sennilega flestir sammála.  Í vetur hef ég t.d. sjálfur stundað badminton í góðra vina hópi og hef haft mjög gott af bæði andlega og líkamlega.  Í badminton, eins og reyndar í flestum öðrum íþróttum, felst töluverð keppni og þó menn spili sér mestmegnis til gamans og jafnvel megrunar þá fær keppnisskapið að njóta sín til hins ítrasta og útrásin er gífurleg.

Ég veit hinsvegar um eina íþrótt sem töluvert er stunduð af okkur Íslendingum, og örugglega fleiri þjóðum, sem er mjög óholl bæði fyrir líkama og sál.  Þessi grein gengur út á að keppendur bera sig og sínar aðstæður stöðugt saman við aðra keppendur og þeirra aðstæður.  Leikurinn er síðan drifinn áfram af öfund og óánægju og eru keppendur í stöðugri leit að grænna grasi.  Flestir tapa í þessari íþrótt og reyndar geta þeir einir talist sigurvegarar sem hætta keppni. 

Þessi íþróttagrein kallast í daglegu tali LÍFSGÆÐAKAPPHLAUP og eins og áður sagði kannast sennilega flestir Íslendingar við að hafa keppt í henni einhverntíma.  Fólk leggur náttúrulega mismikið á sig í keppninni, sumir kaupa stóra jeppa, sumir kaupa húsbíla og sumir flytja jafnvel til annara landa í leit að grænna grasi.  

Ég neita því ekki að ég hef stundað þessa íþrótt eins og flestir Íslendingar.  Ég ætla mér hinsvegar að komast í hóp sigurvegara í þessari stórhættulegu íþróttagrein og stefni nú að því hörðum höndum að hætta keppni.  Ég skora á þá sem þetta lesa að gera slíkt hið sama og fara í staðinn t.d. að spila badminton.


Ísland, best í heimi!

Jæja þá er það heila-morgunleikfimin.  Ég datt niður á þann ansi sniðuga fídus á mbl.is í gær að hægt er að blogga um fréttir sem þeir birta.  Þessi frétt um heimsmetstilraun mentskælinga á Ísafirði finnst mér sniðug og ég vona innilega að þeim takist að setja þetta heimsmet.  Hinsvegar finnst mér þetta er nú háfl fíflaleg "grein" til að setja heimsmet í en það má kanski segja að öll athygli sem svona landsbyggðarskóli fær sé af hinu góða fyrir hann og ég reikna með að það sé nú einmitt það sem þetta snýst um hjá þeim. 

Mér dettur í þessu sambandi í hug smá atvik sem gerðist þegar ég var ungur drengur í Heppuskóla.  Í kjölfar könnunar á tóbaks- og vímuefnanotkun nemenda í grunnskólum landsins kom í ljós að í Heppuskóla reyktu flestir nemendur hlutfallslega á landsvísu (þetta gamla góða "miðað-við-höfðatölu").  Þetta vakti það mikla athygli að einhver útvarspmaður hafði samband við skólann og tók viðtal við einn nemandann um málið.  Og þegar nemandinn var spurður hvað honum finndist nú um að skólinn hans væri sá skóli á landinu þar sem mest væri reykt, svaraði hann hróðugur: "Tja, er ekki gott að vera bestur í einhverju?"


mbl.is Menntskælingar reyna að slá heimsmet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tannlæknafóbía

Ég var einusinni skíthræddur við tannlækna.  Það var nefnilega þannig að þegar ég var á þeim aldri sem maður er að missa barnatennurnar, lenti ég í því að fullorðins-framtennurnar í efrigóm voru óeðlilega lengi að koma í ljós.  Ég var tannlaus og essss-mæltur í heilt sumar í sveitinni og þegar ég kom heim um haustið fór mamma með mig til Sigga Tann í skoðun.  Ég fékk tíma stuttu síðar þar sem kallinn ætlaði að skera fyrir framtönnunum.  Ég hef nú sennilega ekki haft mikið vit á því hvað hann ætlaði að fara að gera og því síður áhyggjur en þegar hann rak framan í mig hnífinn og sagði "Sjáðu, hann er alveg flugbeittur.  Ég er búinn að vera að brýna hann í alla nótt!" stífnaði ég allur upp og varð alveg skíthræddur.  Eftir þetta var ég með þvílíka tannlæknafóbíu sem fór ekki af mér fyrr en ég komst nær viti og árum og áttaði mig á því að þetta hafði verið ákveðin hughreysting hjá Sigga og hann vildi bara láta mig vita að ég finndi ekki fyrir aðgerðinni því hnífurinn væri svo beittur.

Kanski hefur þessi vesalings fangi lent í einhverju svipuðu - hver veit.


mbl.is Fangi strauk frá tannlækninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Teygjuæfingar fyrir heilann

Eins og á þessari bloggsíðu má sjá er hún tiltölulega ný af nálinni.  Ég játa það hér með að ég hef reynt þetta áður með litlum árangri og verð því einnig að játa að ég hef ekki almennilega trú á sjálfum mér í þessu bloggveseni.  Samt er ég nú hér að setja inn enn eina færsluna og finnst þetta bara gaman.  Það kemur stundum fyrir hér á Galdrakontórnum að verkefni klárast en einhverra hluta vegna eru alltaf til staðar önnur sem taka við, sem er auðvitað mjög gott því annars hefðum við ekkert að gera ;)  Það skapast hinsvegar oft laus tími frá því að verk klárast og þar til næsta byrjar.  Þetta er ekki langur tími en það er mjög mikilvægt að nota hann vel.  Hann getur t.d. nýst til að standa upp og fylla á kaffibollann, eða til að fara á prívatið, eða til að spjalla örstutt við vinnufélagana.  Svo datt mér í hugt að skrifa hér smá bloggfærslu og vita hvort slíkt gæti ekki virkað eins og teyjuæfing fyrir heilann, þ.e.a.s. að hugsa í örstutta stund um eitthvað annað en vinnuna.  Það er aldrei að vita nema ég bloggi eitthvað stutt næstu daga til að ná fram niðustöðu í málinu og er þá óvíst hvaða vit verður í því bloggi.  Niðurstöðuna mun ég svo kynna hér á þessari síðu þegar hún liggur fyrir. 

Annars er allt gott að frétta, einhverjir virðast lesa bloggið en mér finnst skrítið að enginn skuli gera athugasemdir við neitt sem ég skrifa.  Einnig finnst mér skrítið að enginn skuli skrifa í gestabókina mína þannig að ég hef ekki hugmynd um hverjir eru að lesa þetta bull. 


Enn meiri blús

Ekkert blogg í gær, þannig að það er best að byrja daginn á einhverju smávegis.  Ég á alveg eftir að klára að tjá mig um Norðurljósablús 2007 sem er ennþá mjög ofarlega í huga mínum.  Ég held ég hafi náð að sjá eitthvað af öllu sem fram fór og hér kemur örstutt lýsing á því sem fyrir augu mín og eyru bar:

Bergþór Smári var mjög góður og eiginlega betri en mig minnti hann vera.  Hann stóð sig mjög vel einn á fimmtudaginn og frábærlega á föstudaginn með krökkunum og ekki versnaði það þegar félagar hans í Mood bættust í hópinn. 

Söngkonan Fanney og gítarleikarinn sem ég man ekki hvað heitir (og því síður hvað þau kölluðu dúettinn) voru stórskemmtileg.  Komu inn í dagskrána á síðustu stundu sem ákveðin redding út af veðrinu sem gerði okkur skráveifu.

Mæðusveitin Sigurbjörn lék nokkur lög á föstudagskvöldið og var alveg stórgóð.  Hún var alveg jafngóð kvöldið eftir ef undan er skilinn dauðadrukkni hljómborðsleikarinn sem skemmdi töluvert fyrir en varð þó mest sjálfum sér til skammar.

Park projekt var einstök upplifun.  þarna fór hver snillingurinn af öðrum hamförum um hljóðfærið sitt.  Pálmi Gunnars á bassa, Gulli Briem á trommur, Agnar Már á píanó og Kristján Edelstein á gítar.  Hvað viljiði hafaða betra?  Rúsínan í pylsuendanum var svo söngkonan Hrund Ósk Árnadóttir.  Það er ótrúleg söngkona og eins og Einar Bárðar sagði svo skemmtilega: Maður þarf nú að vera bæði blindur og heyrarlaus til að hafa ekki gaman af henni.

Jump4Joy voru önnur upplifun.  Hvorki betri né verri en Park Project, bara öðruvísi.  Þetta eru miklir snillingar og alveg stórskemmtilegir eða eins og einhver spekúlantinn orðaði það: "Þeir eru klárlega ekki þunglyndir þessir."

Grasrætur fannst mér mjög góðir.  Sá reyndar ekki nema 3-4 lög með þeim en þetta voru mjög vel spilandi strákar, vel æfðir og flottir.   Ég kíkti á þá seint á laugardagskvöldið og fannst heldur mikill hávaði í þeim.  Það getur líka verið að þreytan hafi verið farin að segja til sín eftir at helgarinnar.

VAX strákarnir klikka nú ekkert.  Sá rétt byrjunina á þeirra giggi en þeir héldu víst uppi stuði til rúmlega 4 á Kaffi Horninu.  Ég nennti ekki að vera svo lengi á fótum, var alveg búinn eftir helgina.

Barnakór Hornafjarðar var með skemmtilega innkomu í hátíðina.  Flutti fjögur blúslög við undirleik Mæðusveitarinnar Sigurbjörns.  Þetta er til marks um áhrifin sem þessi blúshátíð hefur á samfélagið okkar.

Blúsdjammið klikkaði ekki frekar en í fyrra.  Tók töluverðan þátt í því sjálfur og skemmti mér konunglega.  Sæmi, Raggi, Garðar, Bjartmar, Siggi Guðna, Hulda Rós, Ragga og allir sem ég gleymi sem tóku lagið; þetta var GAMAN.  Eini gallinn var kanski sá að eftirá að hyggja voru þarna menn sem mér skilst að hafi langað að vera með en ekki "þorað" einhverra hluta vegna.  Það vantaði kanski að einhver ýtti á menn að taka þátt.

Hananú, þetta voru loka orð mín um blúshátíð hér á þessu bloggi í bili a.m.k.  Það hefur ekki verið formlega rætt í stjórn Hornfirska skemmtifélagsins en mér heyrist menn nú þegar vara farnir að plana Norðurljósablús 2008.


Meiri blús

Jæja þá er þessi mikla blúshelgi á enda.  Þetta var nú meiri snilldin!  Ég er búinn að vera að reyna að í allan dag að lýsa ótrúlegu mómenti sem átti sér stað kl. c.a. 1:05 í gærkvöldi í Sindrabæ þegar Jump4Joy og Mood voru komin í allsherjar blúsjamm auk Önnu Lilju trompetleikara.  Mér hefur hinsvegar ekki tekist að koma neinum vitlegum orðum yfir þessa ótrúlegu upplifun.  Þetta var svona móment sem er ekki hægt að lýsa en þeir sem voru á staðnum vita hvað ég er að tala um. 

Það er líka erfitt að lýsa tónleikum Jump4Joy, en þeir héldu tónleika fyrir troðfullu húsi í gærkvöldi og svo aðra seinnipartinn í dag fyrir mjög þéttsetnu húsi einnig.  Þetta eru ósviknir snillingar og eins og Sigurður Mar félagi minn orðaði það svo skemmtilega í kynningu sinni í dag: Sambland af uppistandi, leikriti og tónlist!  Mér heyrðist þeir félagar vera mjög sáttir með heimsókn sína hingað til Hornafjarðar þegar við kvöddumst seinnipartinn í dag og ég held að flestir Hornfirðingar hafi einnig verið mjög sáttir með heimsókn þeirra hingað.

Svona í lokin langar mig að þakka öllum sem komu að þessari hátíð á einn eða annan hátt kærlega fyrir frábæra helgi.  Tónleikagestir, starfsfólk og tónlistarfólk, þetta var MAGNAÐ HELVÍTI!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband